Ársreikningar innri manns
Einar Guðna - 15. February 2009 @ 5:44

Ég er mikill listunnandi eins og þið kannski vitið. Ég gef yfirleitt list í afmælis og jólagjafir. Ýmist eftir mig eða aðra frambærilega listamenn. Einn af mínum uppáhalds rithöfundum, Frímann Gunnarsson, var að senda frá sér ljóð sem er vel í takt við tíðaranda líðandu stundar. Þess ber þá að geta að ljóðið var samið fyrir tæpu ári síðan.

Ársreikningar innri manns

Hjartanu hefur verið lokað vegna vörutalningar,
Það örlar á jákvæðum viðskiptahalla hið innra.
Útflutningur tilfinninga fylgir engum stýrivöxtum,
Vergar væntingar fara fram úr væntingum.

Verður ólga, eða verður bólga?

Ekki er þörf á aðhaldi né endurskoðun,
Þótt þín innri króna hafi fallið um nokkur pund,
Afkomuspá andans gefur tilefni til bjartsýni,
Djúpar hugsanir bera mikla vexti…

Verður ólga eða verður bólga?

Skellum fjárlögunum á fóninn,
Borgum arð í eigin garð.
Methagnaður tekur sinn toll,
Reikningsár stemmir uppá hár.

Aukinn persónuafsláttur vegna persónutöfra!
 

Frímann Gunnarsson

Ótrúlegur dagur
Einar Guðna - 31. January 2009 @ 2:31

Já ég er ekki frá því að Guð sjálfur hafi viljað verðlauni mig fyrir þann dugnað að fara í ræktina á laugardegi með því að koma mér í þessi ævintýri!

Eftir að hafa keypt mér stútfullan poka af nammi í Videomarkaðnum keyrði ég Kringlumýrarbrautina eins og ekkert sé eðlilegra. Allt í einu keyrir við hliðina á mér steingrár Izusu Trooper líklega framleiddur um 1990. Við það svelgist mér illa á Haribo hlaupkarli, ekki vegna þess að Izusu Trooper geri eitthvað fyrir mig, heldur varð mér starsýnt inn í bílinn. Mér var ekki starsýnt á gloppóttan hárvöxt feitlagna mannsins í bílstjórasætinu eða hálsbandið á gleraugunum hans. Heldur á þreyttu, þybbnu konuna í lopapeysunni sem VAR AÐ TALA Í NMT SÍMA!!! Risa stóran NMT síma með svona krullusnúru, alveg eins og afi átti. Ég hélt að ég væri komin aftur til ársins 1990. Mér leið illa, enda voru Liverpool góðir árið 1990.

Þetta par var alvegn eins og parið sem var að skoða Rolls Royce í Fóstbræðrum.

En þetta var ekki allt. Eftir að hafa gengið í hringi, tjattað og verið svalur í Laugum var ég á leiðinni útúr Laugum, eða eins og Kramer myndi segja “Minding my own business” þegar ég mætti manni sem sagði góðan daginn. Þetta var ekki bara einhver maður, þetta var maður sem hefur ótalsinnum verið framan á Séð og Heyrt, maðurinn sem þú hugsar til þegar þú heyrir minnst á Big band, þetta var söngvari Íslands, Geir Ólafs! Geir Ólafs var bara á gangi eins og venjulegur maður og heilsaði mér eins og jafningja.

Ég tek að ofan fyrir Geira!

Ég býð bara eftir því hvað gerist næst á þessu frábæra degi…..

Alí níðist á á saklausum borgurum
Einar Guðna - 25. January 2009 @ 11:33

Já það er ekki bara Ríkisstjórnin, lögreglan og opinberir starsmenn sem fremja níðingsverk á borgurum okkar ylhýra og ástkæra Íslands. Ónei!

Kjötiðnaðarmenn þessa lands eru farnir að troða á fólki á skítugum skónum eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Hér að neðan eru myndir af salami frá kjötsmiðjunni Alí sem var keypt í síðustu viku. Í morgun tók ég svo eftir merkingunum og varð svona líka sjokkeraður

 

Hér sést dagsetningin betur

 29.0109

Þess má til gamans geta að í dag er 25 janúar. Sveiattan! Hér er linkur á stærri mynd.

Hér skora ég á mótmælendur að fjölmenna í Hafnarfjörðinn og þeyta lúðra og berjar trommur fyrir framan Alí til að sýna forsvarsmönnum Alí að við sitjum ekki og borum í nefið þegar almannaheill er í veði!

Auglýsingastofur athugið!
Einar Guðna - 5. January 2009 @ 1:53

Hér er hann mættur aftur, aðalmaðurinn, maðurinn sem þorir, maðurinn sem veit!

Gjörið svo vel…

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Vaknaður í bili….
Einar Guðna - 13. November 2008 @ 12:01

Ég hef haft lítinn tíma og/eða verið of upptekinn við að spila PES í góðra vina hópi til þess að skrifa hérna inn á síðustu vikur og mánuði. EN.. hálfvitinn hann Ray Wilkins lét mig aðeins staldra við og kom mér í gírinn um stund með því að toppa sjálfan sig í fíflaskap í dag.

Þó að Ray Wilkins hafi spilað atvinnumannabolta fram yfir fertugt þá spilaði hann bara með skítaliðum eins og Wycombe Wanderes, Chelsea, Leyton Orient og Manchester United. Því fær hann ekki mikið respekt fyrir sinn feril sem leikmaður. Hann fær heldur ekki mikið hrós fyrir sinn þjálfaraferil því hann hefur ekkert gert og er núna eins og síðustu ár þjálfari hjá Chelsea.

Nú svo ég haldi áfram þá sagði Ray Wilkins að Arsene Wenger og Arsenal bæru enga virðingu fyrir hvorki Carling Cup eða mótherjum sínum með því að tefla fram eintómum unglingum í þessari keppni. Hann sagði að Chelsea ætlaði sko ekki að haga sér svona enda færu þeir í allar keppnir til þess að vinna þær.´

Eftir að hafa tekið Sheffield United sem er reyndar í næst efstu deild í bakaríið í síðustu umferð,  rúllaði unglingalið Arsenal Úrvalsdeildarliði Wigan upp 3-0. Ég er alveg handviss um að aðallið Arsenal hefði ekki unnið Wigan með svona yfirburðum. Og hvað gerðu Chelsea í kvöld? Jú þeir töpuðu fyrir Burnley! Á heimavelli! BURNLEY!

Sweet fancy Moses!

Hver er með hausinn uppí rassgati?

Þið getið séð viðtalið hér

Bjarki Sig bara mættur
Einar Guðna - 5. November 2008 @ 7:49

Þið munið kannski eftir því að í mái síðastliðnum talaði ég um samtal sem ég átti við Bjarka Sigurðsson (besta handboltamann Íslandssögunnar) inni á klósetti á Hótel Nordica þar sem við vorum samankomnir ásamt svona 500 öðrum Víkingum til að fagna 100 ára afmæli Víkings.

Alla vega þá var ég að reyna að plata kvikindið til að taka fram skóna á ný…….

Og hvað er í gangi? Jú Bjarki Sigurðsson mun spila á morgun fyrir Víking gegn Stjörnunni!!! 41 árs gamall! Ég er búinn að sitja á mér í marga daga mig hefur svo langað að segja öllum þetta. En það má víst ekki fara mikið fyrir þessu. Hann er svo hógvær, hann er ekki fyrir þessa fjölmiðlaathygli sem myndi fylgja ef þetta fréttist. Ég vildi bara láta ykkur vita svo að þið missið ekki af þessum leik. Allir í Víkina á morgun!

Hvað annað er að gerast?

Við Víkingar vorum að senda eitt stk 6 ára strák til AC Milan. Strákur sem æfði með 7. og 8. flokki í sumar býr núna í Milano og AC Milan voru að lokka hann í U-7 ára liðið sitt. Þeir halda ekki vatni yfir honum og eru búnir að spyrja foreldrana hvar hann hafi fengið þessa frábæru þjálfun því hann er svo agaður og er svo meðvitaður um það hvernig á að spila í liði. Þessi gutti var samt bara meðalmaður hjá okkur. ´

Hvað getum við lært af þessu?

Jú Víkingur er með betri 7. og 8. flokk en AC Milan

 

Árið 2004
Einar Guðna - 17. October 2008 @ 6:55

Árið 2004 var viðburðaríkt ár.

Arsenal vann ensku deildina án þess að tapa leik, George Bush var endurkjörinn forseti Bandaríkjanna, Davíð Oddsson hætti sem forsætisráðherra eftir að hafa setið í embætti í 13 ár, Grikkir urðu Evrópumeistarar í fótbolta, Dozer héldu tónleika á Íslandi, Einar varð tvítugur, þá voru 14 ár síðan Liverpool unnu síðast ensku deildina (í dag eru það 18 ár), Dimebag Darrell var myrtur,  Einar Guðnason lék knattspyrnu með Aftureldingu og Forseti Black Sabbath klúbbsins keypti The Rockmobile.

Allt þetta blikknar við hliðina á þeirri staðreynd að þessi tvö myndbönd hér að neðan voru gerð það ár.

Það fyrra er kynningarmyndband fyrir bestu Tyllidaga sem haldnir hafa verið í sögu Menntaskólans í Kópavogi. Þetta myndband er leiksigur hjá mönnum eins og Einari Haralds og Einari Gellu fyrir utan það að Viktor Sigurjónsson, Idol stjarna með meiru, fekk í þessu myndbandi eldskírn sína sem listamaður. Fyrir utan það að Ganton og Arnar Már ofsa klár Brynjarsoon fengu smjörþefinn af bransanum sem hefur heldur betur borgað sig…….

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 

Seinna myndbandið heitir því skemmtilega nafni “Komerkial”. Það var hugsað sem auglýsing fyrir Urpið 2004 sem við “ætluðum” að gefa út á DVD. Fjöldinn allur af Celebum báðu um að fá að vera með í Komerkila en við höfðum við miður ekki pláss fyrir alla. En nokkrir komust þó að. Ég bið ykkur um að halla ykkur aftur og njóta…..

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Lífið maður….
Einar Guðna - 25. September 2008 @ 10:30

Seinfeld eru eins og þið kannski vitið bestu sjónvarpsþættir allra tíma. Þeir eru ekki bara vangefið fyndnir heldur lenda aðalpersónur ótrúlega oft í aðstæðum eða samræðum sem ég alla vega lendi í og alveg örugglega flestir þarna úti. Ég gæti líklega komið með atriði úr Seinfeld sem er keimlíkt einhverju sem ég hef lent í á hverjum degi. Eða nokkrum sinnum í viðbót alla vega….

Þetta stutta atriði hér fyrir neðan er úr þættinum “The Engagement” sem er í 7. seríu en 7. seríu var sýnd veturinn 1995-96. Mér varð hugsað til þessa atriðis eftir samtal sem ég átti við eldri konu í dag. Hún yrði líkleg alveg spinnegal ef hún myndi heyra mig kalla hana eldri konu en hún er alla vega eldri en ég. Þessi ræða hans Kramers er alveg eins og töluð frá mínu hjarta, og ég hélt hana næstum yfir þessari manneskju en sleppti því þar sem hún hefði annaðhvort vöknað um augun eða móðgast það svakalega að hún hefði aldrei talað við mig aftur. Ef þið skiljið ekki ensku getið þið lesið textann

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Rétt upp hönd sem vilja fá Segemyhr aftur í kassann
Einar Guðna - 23. September 2008 @ 10:14

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Í minningunni voru þetta frábærir þættir sem fjölluðu um Fredrik Segemyhr, sambýlisfólk hans og ævintýri þeirra. Ævintýrin gerðust samt flest innan veggja íbúðarinnar hans Fredriks í miðborg Stokkhólms.

Mér finnst samt frekar spes að það Segamyhr þættirnir virðast ekki vera þekktir meðal Svía. Kjartan frændi minn sem bjó í Svíþjóð í 8 ár veit ekkert hvað ég er að tala um þegar ég minnist á Segemyhr. En það er lítið að marka hann því hann eyddi meiri tíma í skógarhögg en í sjónvarpsgláp á þessum 8 árum. Á þeim þremur Hróarskelduhátíðum sem ég hef farið á hef ég hitt mörghundruð Svía. Áður en ég spyr Svíana hvort þeir þekki Blind Dog eða Dozer spyr ég þá hvort þeir fíli Segemyhr. Af þessum 800 Svíum voru tveir sem könnuðust við Segemyhr!! Svo er það hann Freddi Ljungberg vinur minn. Við spjöllum nú oft saman um heima og geyma. Hvorki hann né vinir hans, þeir Markus Alback, Tomas Brolin og Anders Limpar sem kíkja oft með honum og spila PES heima, muna eftir Segemyhr.

Kannski sannar þetta hið fornkveðna að enginn sé spámaður í eigin föðurlandi?

Rétt upp hönd….

Fótbolti er frábær íþrótt…..
Einar Guðna - 22. September 2008 @ 3:23

..en sumir dómarar eru nú meiru sulturnar!

Tékkið á þessu jafnvel þó að þið vitið ekki útá hvað fótbolti gengur

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 

 

Next Page »